Um helgina fór fram í fyrsta skipti rokkhátíðin HELLFOSS, sem haldin var á tónleikastaðnum Sviðinu og á Miðbar í miðbæ Selfoss.
Hátíðin sló í gegn strax í fyrstu atrennu og var uppselt.
Rúnar Hroði, stofnandi HELLFOSS, segist vera í skýjunum með hvernig til tókst. „Þetta gekk langt fram úr okkar björtustu vonum. Hátíðin var uppseld, stemningin frábær og framkvæmdin til fyrirmyndar,“ segir Rúnar. Alls komu þrettán hljómsveitir fram á hátíðinni og var vart hægt að greina eina sem stóð upp úr öðrum, fjölbreytnin og gæðin voru í fyrirrúmi.
Sérstakt lof fékk aðstaðan í miðbæ Selfoss. „Húsnæðið hér er alveg magnað, hljómburðurinn frábær og aðstaðan öll eins og best verður á kosið,“ bætir Rúnar við.
Gestir hátíðarinnar komu víða að, bæði alls staðar af landinu sem og erlendis frá.
Meðal gesta voru rokkunnendur frá Danmörku, Þýskalandi, Póllandi og Bandaríkjunum sem höfðu rekist á hátíðina á netinu og lögðu leið sína til Íslands sérstaklega til að sækja HELLFOSS. „Það var ótrúlegt að sjá þetta gerast strax á fyrsta ári og sýnir að hátíðin hefur burði til að vaxa enn frekar,“ segir Rúnar.
Í tilefni af vel heppnaðri hátíð undirrituðu Davíð Lúther, eigandi Sviðsins, og Rúnar Hroði samning til 666 ára um að HELLFOSS verði áfram haldin í miðbæ Selfoss. Með því er framtíð hátíðarinnar tryggð á sama stað og ljóst að HELLFOSS er komin til að vera.





