Þriðjudaginn 17. febrúar nk. býðst fólki að efla færni sína í fundarstjórn á námskeiðinu Fundastjórnun með Katrínu Jakobsdóttur, sem haldið verður í Háskólafélagi Suðurlands að Tryggvagötu 13 á Selfossi. Námskeiðið stendur frá kl. 16:30 til 18:30.
Katrín Jakobsdóttir hefur áratuga reynslu af stjórnun, forystu og því að leiða saman ólík sjónarmið. Á námskeiðinu miðlar hún hagnýtum verkfærum og aðferðum sem miða að því að gera fundi markvissari, skýrari og árangursríkari.
Námskeiðið er ætlað öllum sem stýra fundum, þar á meðal stjórnendum, millistjórnendum, leiðtogum og fólki sem tekur þátt í félags- og nefndarstarfi. Lögð er áhersla á einfaldar lausnir sem þátttakendur geta nýtt strax í eigin störfum.
Með öflugri fundarstjórn má meðal annars spara tíma, bæta samskipti, auka skýrleika í umræðum og skapa betri forsendur fyrir upplýsta ákvarðanatöku og eftirfylgni. Þá er lögð áhersla á að ólík sjónarmið fái að koma fram og nýtist til styrkingar niðurstöðu.
Á tveggja klukkustunda námskeiðinu verður fjallað um helstu atriði góðrar fundarstjórnar, algengar aðstæður sem geta komið upp á fundum og hvernig best sé að bregðast við þeim. Þátttakendur fá jafnframt að glíma við raunhæft verkefni og námskeiðinu lýkur með skýrri samantekt á lykilatriðum.
Verð fyrir þátttöku er 25.000 krónur.

