Þann 10. desember var haldið sjálfboðaliðakvöld í Hliðskjálf þar sem öllum þeim sjálfboðaliðum sem unnið hafa fyrir félagið á árinu var boðið.
Kvöldið var hið skemmtilegasta þar sem borinn var fram smáréttahlaðborð frá Kjötbúrinu en þeir hafa verið öflugur styrktaraðili félagsins.
Skemmtiatriði og Pub-Quiz sem stjórnað var að Hjörvari Ágústssyni. Með þessu vildi hestamannafélagið sýna þakklæti fyrir öll þau störf sem sjálfboðaliðar hafa unnið.
Hestamannafélaginu Sleipni var jafnframt veitt viðurkenning frá ÍSÍ sem fyrirmyndarfélag. Fyrirmyndarfélag ÍSÍ er gæðaverkefni íþróttahreyfingarinnar er snýr að íþróttastarfi og gildir viðurkenningin í fjögur ár eftir að hún hefur verið veitt. Hafsteinn Pálsson úr framkvæmdastjórn ÍSÍ veitti viðurkenninguna.


