6.2 C
Selfoss

Victor og Hugans skúmaskot í Galleríinu Undir stiganum

Vinsælast

Sýning eftir danska listamanninn Victor Moelgaard Steiness, opnar í Galleríinu í Þorlákshöfn þriðjudaginn 9. desember, kl. 17:00.
Victor hefur alltaf haft gaman af því að teikna en byrjaði ekki á því að ráði fyrr en hann hóf störf hjá danska sjóhernum, þar gafst góður tími fyrir áhugamál á milli vakta. Hann hefur ekki fengið neina formlega kennslu í list eða teikningu og er því algjörlega sjálflærður.
Þetta er fyrsta opinbera sýning Victors, hingað til hafa verkin bara hangið á veggjum heimilis hans og unnustunnar og því mjög spennandi að fá Victor í galleríið. Verkin eru að mestu teiknuð með blekpenna.
Bæjarbókasafnið býður upp á kaffi og smákökur.

Nýjar fréttir