3.5 C
Selfoss

Enska smásagnakeppnin fastur liður hjá GÍH

Vinsælast

Þátttaka í ensku smásagnakeppninni er fyrir löngu orðinn fastur liður í skólastarfi GÍH. Þetta er landskeppninni sem haldin er í tilefni af evrópska tungumáladeginum þann 26. september og allir grunnskólar á Íslandi megataka þátt í. Nemendur í 5. – 10. bekk í Grunnskólanum í Hveragerði taka þátt á hverju ári og verða smásögurnar að vera skrifaðar á ensku og tengjast ákveðnu þema sem að þessu sinna var orðið EPIPHANY sem þýðir UPPLJÓMUN á íslensku.

3. desember sl. var upplýst hvaða smásögur voru valdar á sýningu sem hefst á bæjarbókasafninu í Sunnumörk í desember og hvaða smásögur þóttu skara framúr í hverjum flokki fyrir sig.

Sigmar Karlsson deildarstjóri elsta stigs og Kolbrún Vilhjálmsdóttir deildarstjóri miðstigs stýrðu athöfninni og afhentu vinningshöfunum glæsileg bókaverðlaun og viðurkenningarskjal fyrir sínar smásögur, sem skólinn sendir svo í landskeppnina.

Í flokknum 5. bekkur og yngri fengu eftirtaldir nemendur bækur úr bókaflokknum “Diary of a Wimpy Kid”:

  • Neisti and I eftir Huga Þór Haraldsson í 5. ADA
  • Emma and Her Story eftir Hugrúnu Gunnarsdóttur í 5. BOS
  • Basketball Hero eftir Ísabellu Rán Andradóttur 5. ADA
Vinningshafar í 5. bekk. Mynd: Aðsend.

Í flokknum 6. – 7. bekkur fengu eftirtaldir nemendur bækur eftir rithöfundinn David Walliams:

  • Grimm eftir Magdalenu Sigurjónsdóttur í 6. MDG
  • The Last Upgrade eftir Baltasar Björn Sindrason í 7. LH
  • The Volunteer Workers eftir Karítas Eddu Tryggvadóttur í 7. ISM
Vinningshafar í 6.-7. bekk. Mynd: Aðsend.

Í flokknum 8. – 10. bekkur fengu eftirtaldir nemendur bækur úr bókaflokknum “Harry Potter”:

  • Take Aim eftir Huldu Maríu Hilmisdóttur í 10. JGJ
  • Through Their Eyes eftir Briönnu Lind Sindradóttur í 9. GH
  • A Life In Ink eftir Heru Fönn Lárusdóttur í 9. GH

Við þökkum öllum nemendum kærlega fyrir þátttökuna og óskum vinningshöfunum innilega til hamingju.

Genimar Adriana Aranguren Lopez
Ólafur Jósefsson

Nýjar fréttir