2.9 C
Selfoss

Styrktartónleikar fyrir Þorstein Birni

Vinsælast

27. nóvember verða haldnir sérstakir styrktartónleikar á Sviðinu í miðbæ Selfoss, kvöld sem snýst um samstöðu, hlýju og að standa með fjölskyldu sem stendur í gríðarlega þungum aðstæðum.

Elín Rut Theodórsdóttir og Þorsteinn Helgi Sigurðarson eignuðust sitt þriðja barn, Þorstein Birni, þann 14. október síðastliðinn.

Á meðgöngu kom í ljós sjaldgæfur hjartagalli og aðeins tveggja daga gamall var litli Þorsteinn Birnir fluttur ásamt foreldrum sínum til Svíþjóðar. Hann hefur þegar gengist undir þrjár hjartaaðgerðir og mun þurfa stóra aðgerð í framtíðinni.

Hjartagallinn er svo einstakur að læknar erlendis hafa nefnt hann „Bears heart“, í höfuðið á Þorsteini Birni sjálfum, litlum stríðsmanni sem heldur áfram að koma öllum á óvart með ótrúlegri seiglu. Ekki er víst hvenær fjölskyldan kemst heim.

Slíkar aðstæður á ekkert foreldri né barn að þurfa að ganga í gegnum, og fjárhagsáhyggjur eiga ekki að vera hluti af þessari baráttu. Þess vegna hvetjum við alla sem geta til að leggja sitt af mörkum.

Á tónleikunum koma fram Króli, Fríða Hansen, Katla Njáls, Vilhjálmur B. Bragason og Ingi Þór.

Miðaverð er 3.500 kr og er greitt við hurð.

Húsið opnar 19:30 – atriði hefjast 20:30.

Allur ágóði af miðasölu, bjórsölu og bolasölu fer beint til Elínar og Þorsteins.

Margt smátt skiptir máli

Styrktarreikningur:

Kt. 161097-3229

Rkn. 0150-26-018151

Nýjar fréttir