2.9 C
Selfoss

Garpur vann stigabikarinn á héraðsmótinu í borðtennis

Vinsælast

Alls voru 100 keppendur frá sex félögum skráðir til leiks á héraðsmót HSK í borðtennis, sem fram fór að Laugalandi sunnudaginn 19. október sl. Mótið hefur einu sinni áður verið haldið á Laugalandi, en það var árið 1988.

Segja má að um 50 ára afmælismót hafi verið að ræða, en fyrsta héraðsmótið var haldið árið 1975. Mótið hefur verið haldið nær árlega síðan.

Á mótinu í ár var keppt í tólf aldursflokkum. Garpur vann stigabikarinn annað árið í röð og í þriðja sinn í sögu mótsins. Dímon sem hefur unnið stigakeppnina oftast allra, eða 20 sinnum, varð í öðru sæti og Selfyssingar urðu svo í fjórða sæti.

Stigakeppni félaga:

  1. Íþr.f. Garpur 90,75 stig
  2. Íþr.f. Dímon 64,75 stig
  3. Umf. Selfoss 33,5 stig
  4. Umf. Stokkseyrar 2 stig
  5. Umf. Gnúpverja 0 stig

Nýjar fréttir