2.9 C
Selfoss

Einar Freyr gefur kost á sér sem ritari Framsóknar

Vinsælast

Einar Freyr Elínarson, sveitarstjóri Mýrdalshrepps, hefur tilkynnt að hann gefi kost á sér í embætti ritara Framsóknar á miðstjórnarfundi flokksins sem fram fer 18. október.

„Fylgið við Framsókn mælist nú lægra en erindi okkar réttlætir, og ég er tilbúinn að leggja mitt af mörkum til að snúa þeirri þróun við. Ég hef aflað mér reynslu úr flokksstarfinu og af vettvangi sveitarstjórnar sem ég vil miðla af og fylgja eftir þeim hugsjónum sem ég brenn fyrir. Sem ritari vil ég leggja mitt af mörkum til að efla grasrót flokksins og tryggja stuðning við flokksfélögin í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga,“ segir Einar í tilkynningunni.

Ég sé tækifæri í því að beina pólitískri umræðu í auknum mæli að málefnum sem raunverulega snerta daglegt líf fólks. Við erum kjörin til þess að tryggja og bæta lífsgæði íbúanna okkar og við höfum öll tæki og tól til þess ef við höldum okkur að efninu. Þau okkar sem hafa verið valin í ábyrgðarstöður hjá sveitarfélögum þekkjum það vel og Framsókn hefur góða sögu að segja um allt land. Við þurfum að tryggja að Framsókn verði áfram sterkt stjórnmálaafl á þeim vettvangi og það verður verkefni forystu flokksins næstu misserin,“ segir Einar.

Einar Freyr hefur verið sveitarstjóri Mýrdalshrepps frá árinu 2022 og gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum fyrir Framsóknarflokkinn.

Nýjar fréttir