Sunnudaginn 14. september kl. 16:00 verður einstakur tónlistarviðburður í Skálholtsdómkirkju þegar hinn margverðlaunaði kór Cantica Collegium Musicum frá Slóvakíu kemur fram undir stjórn hins kunna kórstjóra Štefans Sedlickýs.
Kórinn, sem hefur sungið víða um heim – allt frá Þýskalandi til Rómar þar sem hann flutti tónlist fyrir páfa Benedikt XVI – flytur fjölbreytta a cappella efnisskrá. Áheyrendur fá að njóta trúarlegrar og veraldlegrar tónlistar frá ólíkum tímum, eftir bæði slóvakísk og heimsþekkt tónskáld.
Kórinn er margverðlaunaður og hefur m.a. unnið gullverðlaun á alþjóðlegum kórakeppnum í Evrópu og víða um heim.
Ekki missa af þessu frábæra tækifæri að upplifa hágæða kórtónlist í einstöku umhverfi Skálholtsdómkirkju.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir!

