2.9 C
Selfoss

Bíll með fimm manns innanborðs festist í Markarfljóti

Vinsælast

Á miðvikudag voru björgunarsveitirnar Dagrenning á Hvolsvelli og Flugbjörgunarsveitin á Hellu kallaðar út á mesta forgangi vegna tilkynningar um bíl með fimm manns um borð sem var fastur í Markarfljóti rétt við Gilsá á Emstruleið.

Bílnum hafði verið ekið af leið með þeim afleiðingum að hann fór út í Markarfljót, sem er talsvert vatnsmikið. Þar sat hann fastur og tók að skríða niður ána. Í landi var fólk sem treysti sér ekki til að koma farþegum bílsins til aðstoðar og var óttast um öryggi þeirra um tíma.

Björgunarfólk fór á mesta forgangi inn Emstruleið og þegar þau komu á staðinn var vörubíl björgunarsveitar ekið út í ána og fólkinu bjargað úr bílnum og flutt í land.

Aðstæður voru þannig að ekki var talið óhætt að reyna að koma bílnum upp úr ánni á þeim tímapunkti.

Fólkið komst því í land og gat haldið áfram för með samferðafólki eftir að hafa verið skoðað af sjúkraflutningamönnum sem komu á staðinn.

Nýjar fréttir