Iðkendur frjálsíþróttadeildar Umf. Selfoss eru margir í landsliðsverkefnum næstu dagana. Eva María Baldursdóttir, Umf. Selfoss, náði lágmarki í hástökki á Evrópumeistaramóti U23 sem haldið verður í Bergen 17.-20. júlí. Eva María keppir í hástökki fimmtudaginn 17. júlí en fjórar aðrar íslenskar stúlkur náðu lágmarki á mótinu.
Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar fer fram í Skopje í Norður Makedoníu dagana 20.-26. júlí og þar á frjálsíþróttadeildina tvo keppendur af þeim fjórum sem Ísland sendir í frjálsíþróttakeppnina. Bryndís Embla Einarsdóttir, Umf. Selfoss, keppir í spjótkasti fimmtudaginn 24. júlí og Hjálmar Vilhelm Rúnarsson, Umf. Selfoss, keppir í tugþraut en þrautin fer fram 21.-22. júlí. Rúnar Hjálmarsson yfirþjálfari Frjálsíþróttadeildar Selfoss er auk þess þjálfari íslenska hópsins.
Norðurlandameistaramót U20 fer fram í Uppsala í Svíþjóð dagana 26.-27. júlí. Einn keppandi keppir í hverri grein frá Íslandi og voru fjórir iðkendur frjálsíþróttadeildarinnar valdir til keppninnar. Daníel Breki Elvarsson, Umf. Selfoss, keppir í spjótkasti, Hanna Dóra Höskuldsdóttir, Umf. Selfoss, keppir í kringlukasti, Þorvaldur Gauti Hafsteinsson, Umf. Selfoss, keppir í 800m hlaupi og Ívar Ylur Birkisson Dímon keppir í 110 m grindahlaupi.

