Ég vil byrja á að þakka Bjarna Kristni fyrir að senda mér þessa áskorun. Þar sem það er hásumar er viðeigandi að birta sumarlegasta réttinn sem ég finn. Á mínu heimili er þessi ferski og einfaldi taco-réttur eitthvað sem heimilisfólk kann virkilega að meta.
Mangósalsa
- 1 mangó, skrælt og skorið í teninga (ca. 2 bollar)
- 115 g kirsuberjatómatar, smátt skornir
- 1–2 jalapenó, hreinsuð og fínsöxuð (ca 2 msk.)
- ⅓ bolli rauðlaukur, smátt saxaður (ca. 50 g)
- 1 tsk. rifinn límónubörkur (valkvætt)
- 1 msk. safi úr límónu
- Sjávarsalt eftir smekk
Rækjur & tortilla-kökur
- 450 g meðalstórar rækjur,
- 2 msk. suðræn kryddblanda, t.d. fajitas
- Jurtaolía til steikingar
- 10 litlar tortilla-kökur
- Ferskt krydd, t.d. kóríander, steinselja, mynta
- Límónubátar til framreiðslu
Lime sósa
- 50 g majónes
- 50 g sýrður rjómi (10 %)
- 1 límóna (börkur + safi)
- 1 hvítlauksrif
Aðferð
- Mangósalsa
Hrærið öllu hráefninu saman í skál. Smakkið til með salti og geymið í ísskáp þar til borið er fram. - Lime sósa
Hrærið saman sýrðum rjóma og majónesi. Rífið börk límónunnar ofan í, pressið hvítlauksrif og hrærið. Bætið 1 msk af límónusafa út í og smakkið til með salti. - Kryddið rækjurnar
Stráið kryddblöndunni ríkulega yfir rækjurnar báðum megin. - Steikið rækjurnar
Hitið 1–2 msk. olíu á stórri pönnu við meðalháan hita þar til olían titrar. Steikið rækjurnar í ca. 2 mín. hvor hlið eða þar til þær verða fallega bleikar. Það má einnig grilla þær á Muurikka-pönnu. - Setjið saman & berið fram
Raðið heitum kökum á diska, setjið rækjur, rausnarlegan skammt af mangósalsa, stráið fersku kryddi og lime sósu yfir.
Ég vil hvetja Freyju Kötru Erlingsdóttur til að sýna listir sínar í næsta matgæðingi vikunnar. Þar verður eitthvað frumlegt og framandi!

