2.9 C
Selfoss

Andri Már og Katrín Björg klúbbmeistarar GHR 2025

Vinsælast

Vel heppnað meistaramót Golfklúbbs Hellu fór fram í blíðskaparveðri, frábærum félagsskap og hörkustemmningu á Strandarvelli 2. – 5. júlí. Þrjátíu og tveir félagar tóku þátt í mótinu.

Lokahóf með kvöldverði og verðlaunaafhendingu fór fram að aflokinni keppni laugardagskvöldið 5. júlí.

Formaðurinn Heimir Hafsteinsson setti skemmtunina og bauð alla velkomna en Loftur Þór Pétursson sá um að veislustýra við góðar undirtektir, það flugu brandarar og stökur félögum til mikillar skemmtunar.

Klúbbmeistarar GHR eru mæðginin Andri Már Óskarsson og Katrín Björg Aðalbjörnsdóttir.

Önnur úrslit voru eftirfarandi:

Mfl. karla Andri Már Óskarsson

1. fl. karla Óskar Pálsson

2. fl. karla Halldór Ingi Lúðvíksson

3. fl. karla Friðrik Sölvi Þórarinsson

4. fl. karla Ellert Geir Ingvason

1. fl. kvenna Katrín Björg Aðalbjörnsdóttir

2. fl. kvenna Elín Sigríður Óladóttir

3. fl. kvenna Særún Sæmundsdóttir.

Öldungafl. karla Svavar Gísli Ingvason

Öldungafl. kvenna Sólveig Stolzenwald

Ungmennaflokkur Sindri Páll Andrason

Ljósmynd: Aðsend.

Nýjar fréttir