1.7 C
Selfoss
Home Fréttir Uppbyggingarsjóður Suðurlands auglýstir eftir hugmyndum

Uppbyggingarsjóður Suðurlands auglýstir eftir hugmyndum

0
Uppbyggingarsjóður Suðurlands auglýstir eftir hugmyndum

Uppbyggingarsjóður Suðurlands hefur auglýst eftir umsóknum, en sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði nýsköpunar og menningar á Suðurlandi. Markmið sjóðsins eru m.a. að styðja við verkefni sem efla fjölbreytileika atvinnulífs og jákvæða samfélagsþróun á Suðurlandi, að efla menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi og aðstyðja við atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni á Suðurlandi.

Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að hafa samband í síma 480 8200 eða með því að senda fyrirspurn á netfangið styrkir@sudurland.is. Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum vefinn www.sass.is fyrir 16. október nk.