8.9 C
Selfoss
Home Fréttir Tækifæri í aukinni samvinnu landbúnaðar og ferðaþjónustu

Tækifæri í aukinni samvinnu landbúnaðar og ferðaþjónustu

0
Tækifæri í aukinni samvinnu landbúnaðar og ferðaþjónustu

Sveitarstjórn Skaftárhrepps hefur sent frá sér ályktun um þá alvarlegu stöðu sem sauðfjárbændur standa frammi fyrir. Ályktunin er eftirfarandi:

„Sveitarstjórn Skaftárhrepps telur ljóst að lækkun afurðaverðs til sauðfjárbænda í haust muni koma illa niður á sauðfjárbændum í sveitarfélaginu. Í Skaftárhreppi eru um 60 bú sem byggja afkomu sína m.a. af sauðfjárbúskap og fjöldi sauðfjár í sveitarfélaginu um 17.000. Ljóst er að slík skerðing á tekjum mun fyrst og fremst leiða til lækkunar launa sauðfjárbænda og óvíst hversu mörg bú koma til með að standa undir því þar sem þolmörkum hefur þegar verið náð. Sveitarstjórn Skaftárhrepps telur að tækifæri felist í aukinni samvinnu landbúnaðar og ferðaþjónustu sem hægt sé að nýta mun betur en gert er í dag. Leggja þarf meiri áherslu á markaðssetningu og vöruþróun innanlands fyrir þann mikla fjölda ferðamanna sem sækir Ísland heim. Sveitarstjórn skorar á forystumenn sauðfjárbænda, sláturleyfishafa og ráðamenn þjóðarinnar að finna framtíðarlausn á þessum alvarlega vanda sem steðjar að greininni.“