11.1 C
Selfoss
Home Fréttir Eldri borgarar skora á sveitarfélagið að fjölga bekkjum á Selfossi

Eldri borgarar skora á sveitarfélagið að fjölga bekkjum á Selfossi

0
Eldri borgarar skora á sveitarfélagið að fjölga bekkjum á Selfossi

Stjórn Félags eldri borgara Selfossi samþykkti á stjórnarfundi sínum þann 10. maí síðastliðinn að skora á Sveitarfélagið Árborg að fjölga bekkjum á Selfossi. Það sem þarf að hafa í huga við staðsetningu þeirra er að ekki sé of langt í næsta bekk, ruslafata sé við þá og að þeir séu staðsettir norðan við götu, þá snýr sá sem nýtir sér sæti í suður móti sól.

Í ákoruninni segir að í austurbænum séu nú risin fimm fjölbýlishús sem ætluð eru 50 ára og eldri. Það sé því fyrirsjáanlegt að þar muni eldri borgurum fjölga verulega. Mjög fáir bekkir eru í þessum bæjarhluta og því brýn þörf á að fjölga þeim.

Stjórn Félags eldri borgara Selfossi bendir einnig á að gangstétt á Austurvegi sé ónýt og í raun hættuleg gangandi sem hjólandi vegfarendum.