10 C
Selfoss
Home Fréttir Einar Kárason rithöfundur heimsótti nemendur í 10. bekk Sunnulækjarskóla

Einar Kárason rithöfundur heimsótti nemendur í 10. bekk Sunnulækjarskóla

0
Einar Kárason rithöfundur heimsótti nemendur í 10. bekk Sunnulækjarskóla
Einar Kárason rithöfundur ræðir við nemendur. Mynd: Sunnulækjarskóli.

Einar Kárason, rithöfundur kom í heimsókn til nemenda í 10. bekk Sunnulækjarskóla á Selfossi fyrir skömmu. Einar skrifaði m.a. bókina „Djöflaeyjan“ sem nemendur eru að lesa þessa dagana. Hann sagði frá tilurð sögunnar, af hverju áhugi hans kviknaði á þessu efni og hvernig bókin varð til. Einnig ræddi hann einstaka persónur í sögunni og hvernig margar þeirra eiga sér lifandi fyrirmynd í raunveruleikanum.

Einar sagði nemendum einnig aðeins frá sjálfum sér, uppvaxtarárum sínum í Reykjavík en einnig aðeins frá lífi sínu sem rithöfundur. Nemendur voru mjög áhugasamir og heimsókn Einars mun sannarlega hjálpa þeim við lestur bókarinnar.