8.7 C
Selfoss

Í sjálfheldu í Markarfljóti

Vinsælast

Rétt upp úr klukkan 6 í gærmorgun bárust björgunarsveitum á Suðurlandi boð um að bíll hefði lent í Markarfljóti.

Svo virðist sem ökumaður hafi farið á vegrið við brúna, þar sem það er leitt í jörð, og kastast þaðan út í ána. Straumurinn bar svo bílinn nokkuð niður ána áður en hann stöðvaðist. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörgu.

Er björgunarfólk bar að hafði ökumaður bílsins, sem var einn í bílnum komið sér út úr bílnum og hékk utan á honum. Gúmbátur var settur á flot á ánni og sigldi björgunarfólk að bílnum og kom tveimur að bílnum til aðstoðar. Björgunarfólkið sem komið var að bílnum gat komið ökumanni upp á þak bílsins, en hún var orðin köld og nokkuð skelkuð.

Þegar yfirvofandi hætta var afstaðin, var tekin ákvörðun um að bíða komu þyrlu sem hafði verið kölluð út nokkru áður, frekar en að freista þess að koma konunni kaldri og stirðri í gúmbátinn.

Þyrla Landhelgisgæslunnar var á staðnum rétt upp úr klukkan 7 og hífði ökumanninn upp og flutti á brott.

Björgunarsveitir unnu svo að því að ná bílnum upp úr ánni, sem tókst tæpri klukkustund síðar.

Nýjar fréttir