-0.5 C
Selfoss

Tómas tekur við veitingarekstrinum á Hótel Selfossi

Vinsælast

Hótel Selfoss hefur náð samkomulagi við Tómas Þóroddsson um rekstur veitingastaðarins Riverside.  Hann hefur gríðarlega mikla reynslu og þekkingu í rekstri veitingastaða.  Tómas rekur m.a. Kaffi Krús, Tryggvaskála, Messann og heilsustaðinn Vor.

Riverside veitingastaðurinn er þekktur fyrir gæða máltíðir og vinalegt andrúmsloft í dásamlegu umhverfi með útsýni yfir Ölfusá.

„Ég er gríðarlega spenntur fyrir þessu verkefni og kannski hægt að segja að ég sé kominn aftur heim, því ég lærði á Hótel Selfossi, útskrifaðist sem matreiðslumaður þaðan 1993 og var svo ráðinn yfirkokkur og gegndi því starfi til 1999″. Aðspurður sagði Tommi að alltaf væru breytingar með nýjum yfirmönnum og að skemmtilegir tímar væru framundan á Hótel Selfossi. „Hér er mikið af flottu starfsfólki sem við hlökkum til að vinna með“ sagði Tómas Þóroddsson sem var ásamt sínu fólki að taka við veitingarekstri hótelsins.

Nýjar fréttir