0.5 C
Selfoss

Staðan á Heilbrigðisstofnun Suðurlands

Eins og víðar á heilbrigðisstofnunum landsins hefur Heilbrigðisstofnun Suðurlands verið undir miklu álagi í sumar.

Útbreiðsla Covid-19 hefur farið vaxandi hér á landi í sumar og hefur það haft áhrif á starfsemi bráðamóttöku, heilsugæslu og legudeilda. Fjöldi ferðamanna hefur jafnframt aukið álagið á starfsemina. Komum á bráðmóttökuna á Selfossi fjölgar stöðugt og má það sama segja um sjúkraflutningana, en við sjáum talsverða aukningu á starfseminni þar.

Í ár gekk því miður erfiðlega að manna í sumarafleysingar og því er víða undirmannað hjá okkur. Álag síðustu ára er greinilega að skila sér og starfsfólk er orðið langþreytt og treystir sér ekki til að taka allar þær aukavaktir sem verða til við þessar aðstæður. Þessi staða hefur því miður þau áhrif að álagið á starfsfólkið verður enn meira fyrir vikið. Við höfum eins og hægt er reynt að forðast það að kalla starfsfólk okkar inn úr sumarleyfum þar sem afar mikilvægt er að starfsfólkið fari í sumarleyfi og fái tækifæri til að hvíla sig og safna orku fyrir komandi misseri.

Við í framkvæmdastjórn HSU reynum stöðugt að leita leiða til að mæta þeim vanda sem við stöndum frammi fyrir hverju sinni og leggjum við okkur fram við að finna haldbærar lausnir sem tryggja áfram góða heilbrigðisþjónustu og viðunandi starfsumhverfi fyrir okkar góða starfsfólk.

Framundan er ein stærsta ferðamannahelgi ársins með tilheyrandi hátíðahöldum og víst er að margir verða á faraldsfæti um helgina. Það er von mín að allir njóti helgarinnar sem allra best og fari jafnframt með gát í umferðinni svo allir komist heilir heim.

Með góðri sumarkveðju,
Díana Óskarsdóttir, forstjóri

Random Image

Nýjar fréttir