8.4 C
Selfoss

Norræni strandhreinsunardagurinn – Eyrarbakkafjara hreinsuð

Vinsælast

Laugardaginn  5. september verður Eyrarbakkafjara gengin milli kl. 10 & 12 og hreinsuð.  Allir velkomnir að koma og að taka þátt. Nordic Coastal Clean-up – NCC er samstarfsverkefni félagasamtaka á Norðurlöndunum sem vinna að málefnum plastmengunar í höfum með hreinsun á strandlengju Norðurlandanna, gagnasöfnun, greiningu og hvatningu.

Verkefnið byrjaði árið 2017 þegar strandir voru hreinsaðar á öllum norðurlöndum á Norræna strandhreinsideginum sem er haldinn hátíðlegur í maí ár hvert. Sökum Covid-19 var deginum seinkað fram í september í ár.

Gætt verður allra sóttvarna og er fólk hvatt til þess að virða sóttvarnir eins og við á.

Sjálfboðaliðar á vegum Verarldarvina og starfsfólk norrænu sendiráðana munu leiða strandhreinsun við Eyrarbakka.

Allir velkomnir að taka þátt, gæta sóttvarna og að eiga góða samveru á laugardag kl. 10.  Mæting við höfnina á Eyrarbakka.

 

Nýjar fréttir