3.9 C
Selfoss

Árleg jazzhátíð haldin á Skógum á laugardag

Vinsælast

Jazz undir fjöllum, árleg jazzhátíð í Skógum undir Eyjafjöllum, verður haldin í sautjánda sinn laugardaginn 18. júlí.

Aðaltónleikar hátíðarinnar fara fram í félagsheimilinu Fossbúð laugardagskvöldið 18. júlí kl. 21:00. Þar kemur fram kvartett söngkonunnar Andreu Gylfadóttur. Með henni leika þeir Kjartan Valdemarsson á píanó, Þorgrímur Jónsson á kontrabassa og Erik Qvick á trommur. Þau munu flytja fjölbreytta dagskrá jazz- og blústónlistar.

Í Skógakaffi verður boðið upp á tónlist laugardaginn 18. júlí frá kl. 14-17. Þar verða óformlegri tónleikar eða nokkurskonar jam session þar saxófónleikarinn Sigurður Flosason leiðir kvintett sem skipaður er þeim Andrési Þór Gunnlaugssyni á gítar,  Kjartani Valdemarssyni á píanó, Þorgrími Jónssyni á kontrabassa og Erik Qvick á trommur. Ókeypis er inn á þessa tónleika og reiknað með að gestir geti komið og farið að vild á meðan á tónleikunum stendur.

Fyrri hátíðir í Skógum hafa fengið frábæra aðsókn og góða dóma. Hér er á ferðinni einstakt tækifæri til að njóta góðrar og fjölbreyttrar tónlistar í tengslum við lifandi náttúru Íslands eins og hún gerist fegurst. Aðstandendur hátíðarinnar eru Skógasafn  og Sigurður Flosason. Stuðningsaðilar hátíðarinnar eru: Rangárþing eystra, Hótel Skógar og Skógasafn. Aðgangur er ókeypis í Skógakaffi, en aðgangseyrir er kr. 2.500 í Fossbúð.

Nýjar fréttir