-1.6 C
Selfoss

„Dáið er alt án drauma“

Vinsælast

Sunnudaginn 12. júlí, kl. 14 og 15, verður næsti viðburður Menningarsumars Bókakaffisins á Selfossi. Að þessu sinni sækir dagskráin yfirskrift sína í kvæði Nóbelskáldsins, enda munu ljóðin svífa yfir vötnum.

Fjögur ljóðskáld koma fram. Rangæingarnir Brynjólfur Þorsteinsson og Harpa Rún Kristjánsdóttir munu lesa úr væntanlegum ljóðabókum sínum, en árið 2019 hlutu þau bæði verðlaun fyrir ljóð sín, Ljóðstaf Jóns úr Vör og verðlaun Tómasar Guðmundssonar.

Nöfnurnar Steinunn Sigurðardóttir og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir lesa einnig auk þess sem sú síðarnefnda mun leika og syngja draumkennda tónlist.

Sem fyrr verður dagskráin flutt tvisvar sinnum og takmarkaður sætafjöldi er á viðburðina. Talið verður inn og eru 25 pláss í boði. Síðast komust færri að en vildu svo fólk er hvatt til þess að mæta tímanlega. Boðið er uppá ókeypis uppáhelling og te meðan á viðburðunum stendur.

Eins og fyrr segir hefst fyrri dagskráin kl. 14 og sú seinni kl. 15. Athugið að um er að ræða sömu dagskrá sem flutt er tvisvar sinnum.

Nýjar fréttir