3.9 C
Selfoss

Líkamsárás á eftirlitsmann MAST kærð til lögreglu

Vinsælast

Líkamsárás sem starfsmaður Matvælastofnunar varð fyrir í eftirliti hefur verið kærð til lögreglu. Við komu á eftirlitsstað var eftirlitsmönnum hótað og annar sleginn tvisvar með hækju.

Sami einstaklingur hefur áður verið kærður til lögreglu fyrir árás á starfsmann stofnunarinnar. Ekki var um sama starfsmann að ræða í bæði skiptin. Matvælastofnun hefur ítrekað haft afskipti af hundahaldi mannsins, en tilefni heimsóknar var hins vegar eftirlit með nágrönnum hans.

Í almennum hegningarlögum segir að hver sá sem ræðst með ofbeldi eða hótunum um ofbeldi á opinberan starfsmann þegar hann er að gegna skyldustarfi sínu eða sem á sama hátt leitast við að hindra framkvæmd slíks starfs skal sæta fangelsi allt að 6 árum. Jafnframt segir að beita megi sektum ef brot er smáfellt.

Allt ofbeldi eða hótanir um ofbeldi í garð starfsmanna Matvælastofnunar verður kært til lögreglu.

Nýjar fréttir