6.7 C
Selfoss

Framkvæmdir við Gullfoss – mannvirki endurnýjuð

Vinsælast

Framkvæmdir eru hafnar við endurnýjun á göngustíg og útsýnispalli á efra svæði við Gullfoss. Verið er að útbúa hjáleið frá Gullfosskaffi að stiga. Leið að útsýnispalli á efra svæði verður lokuð á meðan framkvæmdir standa yfir.

Við neðra bílastæði eru engar framkvæmdir í gangi og fært niður að fossi.

Í tilkynningu frá Umhverfisstofnun biður stofnunin gesti velvirðingar á þeirri röskun sem þessar þessar framkvæmdir gætu haft í för með sér en minnir jafnframt á ábatann sem af hlýst, íslenskri náttúru til verndar.

Nýjar fréttir