8.4 C
Selfoss

Innleiðing rafrænna eyðublaða í fullum gangi hjá ríkinu

Vinsælast

Dómsmálaráðuneytið hefur undanfarið unnið með verkefnastofunni um stafrænt Ísland, sýslumönnum og forriturum að því markmiði að bæta þjónustu sýslumanna með auknu framboði rafrænna eyðublaða.

Rafrænu eyðublöðin sem verið er að innleiða verða fyrst um sinn á PDF-formi, þar sem boðið verður m.a. upp á rafrænar undirskriftir og skil á nauðsynlegum fylgigögnum. Eftir að eyðublöðin hafa verið fyllt út og undirrituð munu þau sendast í málaskrárkerfi sýslumanna og stofna þar mál með sjálfvirkum hætti. Við það fær málshefjandi senda sjálfvirka tilkynningu um móttöku erindisins og upplýsingar um embættið sem fær það til úrlausnar á pósthólfið á Ísland.is.

Um er að ræða fyrsta skref í gagn- og sjálfvirkum samskiptum almennings við sýslumannsembættin sem vonir standa til að muni með tímanum bæta verulega stafræna þjónustuna hins opinbera gagnvart almenningi.

Eyðublöðin verða innleidd í áföngum og birtast á vefjunum www.island.is og www.syslumenn.is. Almenningur er hvattur til að kynna sér framangreindar vefsíður og velja merkið „Stafrænt form“ kjósi þeir að skila erindunum inn með þeim hætti.

Nýjar fréttir