-0.5 C
Selfoss

Kaffi og kökur í útibúi Landsbankans fimmtudaginn 5. mars

Vinsælast

Fimmtudaginn 5. mars ætlar starfsfólk útibús Landsbankans á Selfossi að bjóða upp á kaffi og kökur á opnunartíma útibúsins frá kl. 9 til 16. Tilefnið er að fagna því með viðskiptavinum að Landsbankinn mældist efstur banka í Íslensku ánægjuvoginni. Allir eru velkomnir!

Rúmlega öld er liðin frá því að Landsbankinn opnaði útibú á Selfossi. Útibúið var fyrst í Tryggvaskála, síðan að Austurvegi 21 en flutti árið 1953 yfir götuna í Landsbankahúsið að Austurvegi 20. Nýlega voru gerðar breytingar í útibúinu sem fólust m.a. í því að möguleikum til sjálfsafgreiðslu var fjölgað. Í útibúinu eru hraðbankar sem nota má til innlagna og úttekta á reiðufé, til að greiða reikninga og kaupa erlendan gjaldeyri í fjórum myntum. Í útibúinu er sem fyrr lögð mikil áhersla á að viðskiptavinir fái persónulega þjónustu hjá gjaldkerum, þjónustufulltrúum og öðru starfsfólki.

Random Image

Nýjar fréttir