6.7 C
Selfoss

Fjöldi Sunnlendinga tók þátt í hæfileikamótun N1 og KSÍ

Vinsælast

Hæfileikamótun N1 og KSÍ var með æfingar á Suðurlandi þann 6. febrúar. Alls mættu 33 leikmenn frá þremur félögum á Suðurlandi á æfingarnar sem fóru fram í Hamarshöllinni í Hveragerði. Leikmenn stóðu sig að vanda með sóma og gáfu allt í æfingarnar sem gengu vel.

Umsóknarmenn æfinganna voru Lúðvík Gunnarsson, þjálfari í hæfileikamótun og Elías Örn Einarsson, markmannsþjálfari. Þeim til aðstoðar að þessu sinni var Fanney Úlfarsdóttir, þjálfari hjá KFR.

Ljósmyndir: KSÍ

Nýjar fréttir