1.7 C
Selfoss

Líkfundur á Sólheimasandi

Vinsælast

Í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi kemur fram að tilkynnt hafi verið laust fyrir klukkan 12 um að lík konu hafi fundist á Sólheimasandi skammt frá flugvélarflaki þar.

„Lögreglumenn fóru þegar á vettvang og í framhaldi af skoðun þeirra á vettvangi var kölluð björgunarsveit til frekari leitar.  Um kl. 14:00 fannst lík karlmanns skammt frá þeim stað sem konan lá.  Dánarorsök liggur ekki fyrir og verður ekki ljós fyrr en að lokinni krufningu á líkunum.   Vísbendingar eru um að um sé að ræða par sem var að ferðast saman og hefur sendiráð viðkomandi ríkis verið upplýst um stöðuna. Bíll sem talinn er í leigu parsins er á bílastæði við Sólheimasand og vitað er að hann fór um Hvolsvöll á austurleið kl. 14:55 þann 13. janúar s.l.“

Þá kemur fram að ekki verði veittar frekari upplýsingar að sinni.

 

Nýjar fréttir