7.3 C
Selfoss

Kakófundur í Sunnulækjaskóla um sterkari sjálfsmynd barna

Vinsælast

Kakófundir á vegum Samborgar hafa verið vel sóttir af foreldrum í Árborg. Samborg er samstarfsvettvangur foreldrafélaga grunn- og leikskóla í Árborg. Framundan er afar spennandi fyrirlestur á Vegum Kristínar Tómasdóttur um sterkari sjálfsmynd barna. Fyrirlesturinn er opinn öllum foreldrum í Árborg og kostar ekkert. Fyrirlesturinn fer fram í Sunnulækjarskóla þann 14. janúar nk. kl. 20. Áhugasamir geta meldað sig á viðburðinn hér.

Nánar um efni kvöldsins:

Kristín Tómasdóttir, rithöfundur heldur fyrirlesturinn “sterkari sjálfsmynd” þar sem hún fer yfir það hvernig við sem foreldrar getum haft jákvæð áhrif á sjálfsmynd barnanna okkar. Kristín mun taka fyrir hugtakið sjálfsmynd, hvað það merkir og hvernig við getum lært að þekkja og kortleggja sjálfsmynd okkar og barnanna okkar. Þá gefur hún nokkur ráð til foreldra um hvernig hægt sé að hafa áhrif á og fyrirbyggja að sjálfsmynd barnanna okkar þróist í neikvæða átt.

Kristín Tómasdóttir hefur skrifað sex sjálfstyrkingarbækur fyrir börn og unglinga og rekur sjálfstyrkingarfyrirtækið „Út fyrir kassann“ með Bjarna Fritzsyni. Kristín er með BA próf í sálfræði og kynjafræði, hún er með MPA próf í stjórnun og stefnumótun í opinberri stjórnsýslu og leggur lokahönd á meistaranám í Fjölskyldumeðferð.

Nýjar fréttir