0.3 C
Selfoss

LÍFSVERK – Þrettán kirkjur Ámunda Jónssonar

Vinsælast

Listamaðurinn Guðrún Arndís Tryggvadóttir á Selfossi er höfundur bókarinnar „LÍFSVERK – Þrettán kirkjur Ámunda Jónssonar“ og mun hún standa fyrir útgáfuhátíð bókarinnar í Skálholti í samstarfi við staðinn. Mun hún segja frá aðdraganda bókarinnar og tilurð verksins og sýna myndverk úr bókinni.

Í þessari litríku og heillandi bók leitar Guðrún Arndís Tryggvadóttir að lífsverki forföður síns, Ámunda Jónssonar, smiðs, listmálara og bíldskera á 18. öld. Hún endurskapar ævi hans og iðju í vatnslitamyndum í því skyni að nálgast fortíðina og lætur innsæinu eftir að kalla fram svör – í myndverkum og textum til íhugunar.

Í bókinni eru ljósmyndir af öllum þekktum verkum Ámunda auk fræðigreina eftir Arndísi S. Árnadóttur og Sólveigu Jónsdóttur sem ætlað er að auðga þessa sögu, ljá henni líf og styrkja sambandið við líf og list fortíðar. Með allt þetta í höndum er það síðan verkefni áhorfandans og lesandans að spegla sinn eigin reynsluheim í því sem hér er borið fram.

„Ég vil spegla nútímann í fornum veruleika í von um skilning á eigin tilveru,“ segir Guðrún A. Tryggvadóttir um ferðalag sitt til fortíðar. Með þeim orðum hvetur hún okkur til íhugunar um það hvernig umhverfi, uppruni og reynsla móta menn, letja eða hvetja á hverri tíð, og hvernig fjarlægðin milli okkar og Ámunda Jónssonar í árum og öldum býður okkur að skynja raunverulegt virði þess sem eitt sinn var.

Bókin er gefin út samhliða sýningu Guðrúnar Arndísar Tryggvadóttur í Hallgrímskirkju í Reykjavík, 1. desember 2019 – 1. mars 2020.

Sýning myndverka Guðrúnar í bókinni verður áfram í Skálholti og mun standa þar opin fram til loka janúar en opið er í Skálholtsskóla alla daga.

Útgáfuhátíðin og sýningin verður í Skálholtsskóla laugardag 14. desember kl. 14 og er öllum opin. Eftir erindin verður kaffi í veitingastaðnum í skólanum.

Random Image

Nýjar fréttir