1.7 C
Selfoss

Gæsluvarðhald framlengt á grundvelli almannahagsmuna

Vinsælast

Héraðsdómur Suðurlands úrskurðaði í morgun, að kröfu lögreglustjórans á Suðurlandi, um að maður sem sætt hefur í gæsluvarðhaldi á grundvelli rannsóknarhagsmuna, vegna gruns um heimilisofbeldi og kynferðisbrot, frá 19. nóvember s.l. skuli sæta áframhaldandi gæslu allt til 20. desember n.k. en nú á grundvelli almannahagsmuna. Áfram er unnið að rannsókn þeirra brota sem hann er grunaður um og er ekki að vænta frekari upplýsinga um þá rannsókn frá lögreglu að sinni, segir í tilkynningu frá Lögreglunni á Suðurlandi.

 

 

Nýjar fréttir