6.7 C
Selfoss

Reg & Andreas jólatónleikar á Íslandi

Vinsælast

Upplifðu hinn hjartahlýja og brosmilda dúett Reg & Andreas og kallaðu fram hinn sanna jólaanda á þeirra fyrstu jólatónleikaröð á Íslandi.

Kanadíski söngvarinn Reg Downey, með sína stóru, mjúku rödd og hinn fjölhæfa danski píanisti og söngvari Andreas Flensted hafa sl. þrjú ár ferðast um sem dúett og haldið marga tónleika bæði innan Danmerkur og utan við afar góðar undirtektir áheyrenda. Með smitandi húmor og gleði fyrir lífinu hafa þeir vakið áhuga tónleikagesta á þeim lögum sem þeir flytja og fallegum textum þeirra. Þeir syngja jafnt ensk sem dönsk jólalög við píanóundirspil. Flutt verða létt lög eins og “Jingle Bells” og Let It Snow” sem og lög sem innihalda frið, von og gleði, má þar nefna lög eins og ”Mary Did You Know” og “Silent Night”. Þeir hafa sjálfir samið nokkur laganna og má finna hluta þeirra á síðasta jóladisknum sem þeir hafa gefið út.

Á undanförnum árum hefur dúettinn komið fram á 30-40 jólatónleikum í Kananda, Noregi, Englandi, Færeyjum og Danmörku. Enn og aftur ferðast þeir heima og að heiman til að lyfta upp anda jólanna.

Tónleikarnir verða:

21. nóvember, Hella: Jólatónleikar Oddakirkja

22. nóvember, Selfoss: Jólatónleikar Skálholtskirkja

23. nóvember, Hvolsvöllur: Jólatónleikar Ásólfsskálakirkja

25. nóvember, Mosfellsbær: Jólatónleikar Lágafellskirkja

26. nóvember, Kópavogur: Jólatónleikar Lindakirkja

Nýjar fréttir