0.3 C
Selfoss

Prentmet Oddi tekur til starfa

Vinsælast

Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Prentmets á Prentsmiðjunni Odda.  Nafn sameinaðs félags er Prentmet Oddi með aðsetur að Höfðabakka 7 þar sem Oddi hefur verið til húsa. Hjá sameinuðu félagi starfa um 100 manns.

Íslenskur prentiðnaður er í harðri alþjóðlegri samkeppni þar sem samkeppnishæfni innlendrar framleiðslu hefur beðið hnekki, m.a. vegna gengis- og launaþróunar. Sameinað fyrirtæki mun snúa vörn í sókn til að tryggja framleiðslu á prentverki á Íslandi til lengri tíma. Með kaupunum verður til sterkt fyrirtæki sem býður upp á heildarlausnir í prentverki og fyrsta flokks þjónustu, byggt á áratuga reynslu og þekkingu starfsfólks.

Prentmet Oddi er leiðandi í vinnslu umbúða og eina fyrirtækið sem getur fullunnið harðspjaldabækur. Á næstu misserum verður unnið að því að styrkja tækjakost fyrirtækisins enn frekar.

Fyrirtækið er Svansvottað og er í fremstu röð hvað varðar lágmörkun neikvæðra  áhrifa á umhverfi og heilsu. Stefnt er að því að vera leiðandi í umhverfis- og loftslagsmálum og halda áfram að stuðla að sjálfbærni og skógrækt.

Prentsmiðjan Oddi var stofnað 9. október 1943 af Baldri Eyþórssyni, Finnboga Rúti  Valdimarssyni, Björgvini Benediktssyni og Ellert Ág. Magnússyni. Prentmet var stofnað 4. apríl 1992 af hjónunum Guðmundi Ragnar Guðmundssyni og Ingibjörgu Steinunni Ingjaldsdóttir sem eiga og reka sameinað fyrirtæki. Guðmundur var á meistarasamning prentsmíði hjá Odda 1985-1988 og var Þorgeir Baldursson forstjóri, meistari hans.

 

 

 

 

 

Random Image

Nýjar fréttir