5.6 C
Selfoss

Undirbúningur Suðurlandsdeildarinnar í fullum gangi

Vinsælast

Undirbúningur er hafinn fyrir fjórða keppnisárið í Suðurlandsdeildinni! Frábær stemning hefur verið í deildinni síðustu ár og er sko enginn bilbugur á fólki. Nú er tækifæri til þess að setja saman lið og vera með á komandi keppnistímabili í Suðurlandsdeildinni í hestaíþróttum í Rangárhöllinni á Hellu! Þrjú sæti eru laus í deildinni.

Þau lið sem eiga þátttökurétt í deildinni þurfa að staðfesta fyrir 15. október hvort þau muni halda áfram. Ný lið sem áhuga hafa á að koma í deildina þurfa að skila inn umsóknum fyrir 31. október. Umsókninni þurfa að fylgja staðfest nöfn 3 áhugamanna og 2-3 atvinnumanna. Dregið verður úr umsóknum. Umsóknarfrestur er til 31. október. Þátttökugjald er 130.000 kr.

Þau lið sem féllu úr deildinni 2019 geta sótt um aftur og fara í pottinn ásamt nýjum liðum sem sækja um.

Liðin verða áfram skipuð 2-3 atvinnumönnum og 3 áhugamönnum. Á hverju kvöldi keppa 2 áhugamenn og 2 atvinnumenn, nema á lokakvöldinu – þá geta allir keppt. Áhugamaður má keppa sem atvinnumaður en atvinnumaður má ekki keppa sem áhugamaður. Áfram verður Suðurlandsdeildin einungis liðakeppni en þrjú stigahæstu liðin verða verðlaunuð.

Atvinnumaður: Allir ásamt ungmennum.

Áhugamaður: Er að lágmarki 22 ára á árinu og má ekki hafa keppt í meistaraflokk síðustu 2 ár.

Stjórn Suðurlandsdeildarinnar hefur loka ákvörðunarvald um hvort knapar uppfylli inngangsskilyrði.

Suðurlandsdeildin hefst þann 4. febrúar 2020 þar sem keppt verður í parafimi. Keppniskvöldin verða fjögur. Á síðasta kvöldinu verður einnig keppt í skeiði og keppir þá einn áhugamaður og einn atvinnumaður eða tveir áhugamenn fyrir hvert lið í þeirri grein. Ætlast er til að allir liðsmenn keppi a.m.k. einu sinni á tímabilinu.

Dagsetningar móta hafa verið ákveðnar.

4. febrúar – Parafimi
5. febrúar – Fjórgangur
6. mars – Fimmgangur
7. mars – Tölt og skeið

Allar spurningar sem og umsóknir vegna Suðurlandsdeildar skulu sendar á rangarhollin@gmail.com.

Nýjar fréttir