0.5 C
Selfoss

Halló, halló, ferja!

Vinsælast

Sögu Iðuferju, brúarinnar á Hvítá hjá Iðu og Laugaráss eru gerð skil á söguskiltum sem  nú hafa verið sett upp við norðurenda brúarinnar.  Skiltin voru afhjúpuð  þann 24. ágúst í einstakri veðurblíðu sem svo mjög einkennir þetta svæði, og fjölmargir gestir voru þar viðstaddir.

Elinborg Sigurðardóttir á Iðu og Páll M. Skúlason í Kvistholti gerðu þarna grein fyrir tilurð skiltanna, sem voru gerð í minningu hjónanna Ingólfs Jóhannssonar og Margrétar Guðmundsdóttur á Iðu og Guðnýjar Pálsdóttur og Skúla Magnússonar í Hveratúni í Laugarási. Það voru afkomendur þeirra sem áttu frumkvæði að gerð skiltanna og þeir styrktu gerð þeirra með umtalsverðu fjárframlagi.  Það voru síðan börn Iðuhjóna og Hveratúnshjóna sem afhjúpuðu skiltin.

Elinborg og Páll unnu á þau alla texta og völdu myndir.  Sveitarfélagið Bláskógabyggð styrkti verkið  einnig, svo og Vegagerðin og fleiri aðilar.  Skiltin voru sett upp samhliða bæjarskilti fyrir Laugarás.

Í lok athafnarinnar afhentu afkomendur hjónanna  Sveitarfélaginu Bláskógabyggð skiltin til umsjónar og varðveislu og sveitarstjórinn Ásta Stefánsdóttir veitti þeim viðtöku.

Fyrirsögnin vísar til minninga bræðranna Einars og Jósefs Ólafssona, en faðir þeirra, Ólafur Einarsson var héraðslæknir í Laugarási frá 1932-1947. Þeir voru oft sendir á Skálholtshamar, sem er  þar sem norðurendi brúarinnar er nú, til að kalla á ferjuna og flýta þannig fyrir föður sínum, sem þurfti að fara í læknisvitjun austan ár. Þeir voru einnig sendir á ferjuna með lyf sem þurfti að koma yfir. Það sama má segja um mjóróma hróp þeirra af Auðsholtshamri, en þar var einnig lögferja langt fram eftir síðustu öld.

Saga ferjanna, brúarinnar og Laugaráss er samtvinnuð og söguskiltin gera nokkra grein fyrir henni, en  Páll vinnur að vef um Laugarás og nágrenni, www.laugaras.is þar sem þessari sögu eru gerð ítarlegri skil bæði í texta og með myndefni af ýmsu tagi. 

 

F.v. Loftur Ingólfsson, Jóhanna B. Ingólfsdóttir og Guðmundur Ingólfsson frá Iðu, Páll M. Skúlason, Magnús Skúlason, Sigrún Skúladóttir og Ásta Skúladóttir frá Hveratúni. Á myndina vantar Hólmfríði Ingólfsdóttur og Benedikt Skúlason. Mynd: Halldór Páll Halldórsson.
Random Image

Nýjar fréttir