6.7 C
Selfoss

Grunnskólar að hefjast og ungir vegfarendur stíga sín fyrstu skref

Vinsælast

Það fylgir haustinu að starf grunnskólanna hefjist og nemendum á leið í og úr skóla í umferðinni fjölgar í samræmi við það. Það er rétt að minna á að ung börn eru mörg hver að stíga sín fyrstu skref í umferðinni og vert að brýna fyrir öllum að sýna varkárni. Oft er mikill umferðarþungi við skólana í upphafi skóladags þegar fjöldi bíla með börnin innanborðs streyma að og flestir að flýta sér þaðan á leið til vinnu sem getur skapað ákveðna hættu.

Í samtali við Lögregluna á Suðurlandi kemur fram að gott sé að gefa nokkrum atriðum gaum svo hlutirnir gangi vel fyrir sig. Meðal þeirra atriða er að muna eftir sjálfsögðum öryggisbúnaði eins og endurskinsmerkjum og/eða -vestum ásamt hjálmi fyrir þau sem hjóla. Þá er gott að fara yfir leiðina með yngstu nemendunum og ganga hana nokkur skipti með þeim til að bæði kenna leiðina og benda á hættur sem ber að varast. Það ýtir svo undir að þau taki betur eftir umhverfinu. Hvað hina fullorðnu varðar er gott að hafa í huga að skammdegið nálgast og birtuskilyrði eru að breytast. Þá er gott að hafa það bakvið eyrað að ungir vegfarendur eru margir að fara í fyrsta skipti út í umferðina. Þá mætti leiða hugann að því að leggja örlítið fyrr af stað og skilja stressið eftir. Það vill brenna við að slysin gerast stundum þegar við erum að flýta okkur.

 

 

Nýjar fréttir

Hæ þú

Frostrós