-0.9 C
Selfoss

Framkvæmdir hafnar við stækkun vatnsveitu í Rangárþingi ytra

Vinsælast

Það var hátíðardagur hjá Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps þegar teknar voru fyrstu skóflustungur að stækkun vatnsveitunnar með nýjum miðlunartanki í Hjallanesi og vatnslögnum frá Lækjarbotnum niður að Bjálmholti. Það voru þau Haraldur Eiríksson stjórnarformaður, Bjarni Jón Matthíasson fyrrum veitustjóri, Elínborg Sváfnisdóttir bóndi í Hjallanesi og Guðni G. Kristinsson núverandi veitustjóri sem tóku fyrstu skóflustungurnar. Með þessum framkvæmdum er verið að auka til muna afköst vatnsveitunnar og afhendingaröryggi. Þessi áfangi sem nú er ráðist í felur í sér að reistur verður 400 m3 miðlunartankur í sk. Fögrubrekku sem stendur það hátt að vatn verður sjálfrennandi nánast um allt þjónustusvæði veitunnar. Auk þess samtengjast m.a. veiturnar í Lækjarbotnum og Bjálmholti sem er gríðarlegt atriði til að tryggja afhendingaröryggi. Auk miðlunartanksins verður um að ræða 8,5 km af vatnslögnum í þessum áfanga. Verktaki er Þjótandi ehf. en um er að ræða 178 mkr. verk og er miðað við verklok 1. nóvember 2021. Framkvæmdar eru hafnar í kjölfarið af fullum krafti.

Random Image

Nýjar fréttir