4.4 C
Selfoss

Fjóla Signý og Dagur Fannar Íslandsmeistarar

Vinsælast

Meistaramót Íslands í fjölþrautum fór fram á Akureyri helgina 17.-18. ágúst. Tveir keppendur frá frjálsíþróttadeild Selfoss tóku þátt í mótinu og urðu báðir Íslandsmeistarar.

Fjóla Signý Hannesdóttir varð Íslandsmeistari kvenna í sjöþraut. Hún krækti sér í 4.529 stig. Hún hljóp 200 m á 26,81 sek, 100 m grind á tímanum 14,55 sek, stökk 1,64 m í hástökki og 5,20 m í langstökki, kastaði kúlunni 9,61 m og spjótinu 23,72 m og endaði á því að hlaupa 800 m á 2:34,37 mín.

Frábært hjá okkar ötulu afrekskonu en Fjóla Signý er búin að eiga flott sumar og er öðrum iðkendum deildarinnar mikil hvatning, frábær liðsmaður sem gefst aldrei upp.

Dagur Fannar Einarsson varð Íslandsmeistari í tugþraut í flokki 16-17 ára með 6.291 stig. Árangurinn er yfir HSK-metinu sem hann setti sjálfur fyrr í sumar en því miður var vindur yfir leyfilegum mörkum. Þess má geta að Dagur Fannar hefði komist inn í stórmótahóp FRÍ ef þrautin hefði verið lögleg. Hann hljóp 100 m á 11,54 sek, 400 m á 53,22 sek, 1.500 m á 4:40,42 mín og 110 m grind á tímanum 15,32 sek. Hann stökk yfir 1,72 m í hástökki, stökk 6,40 m í langstökki, í stangarstökki flaug hann yfir 3,54 m, kastaði kúlunni 12,12 m og spjótið flaug 46,38 m.

Frábær árangur hjá okkar efnilega tugþrautarmanni. Dagur Fannar er búinn að vera á mikilli siglingu í allt sumar, hann er virkilega duglegur að æfa og frábært efni í góðan tugþrautarmann.

Nýjar fréttir