-0.6 C
Selfoss

Guðrún Hafsteinsdóttir endurkjörin formaður SI

Vinsælast

Á aðalfundi Samtaka iðnaðar­ins sem haldinn var í liðinni viku var Guðrún Hafsteinsdóttir, Kjörís Hveragerði, endurkjörin for­maður með 95,9% greiddra atkvæða. Guðrún verður formað­ur Samtaka iðnaðarins fram til Iðnþings 2020.

Alls gáfu sjö kost á sér til almennrar stjórnarsetur og var kos­ið um fjögur sæti. Ágúst Þór Pétursson, húsasmíða­meist­ari, Guðrún Halla Finns­dótt­ir, Norð­u­ráli, Magnús Hilm­ar Helgason, Laun­afli í Fjarðabyggð og Sig­urð­ur R. Ragnarsson, ÍAV, setjast í stjórn Samtaka iðnaðar­ins til næstu tveggja ára. Sig­urð­ur situr áfram í stjórn en nýir eru Ágúst Þór, Guðrún Halla og Magnús Hilmar. Fyrir í stjórn eru Árni Sigurjónsson, Marel, Birgir Örn Birgisson, Pizza-Pizza, Egill Jónsson, Össuri, María Braga­dóttir, Alvogen Iceland og Valgerður Hrund Skúladóttir, Sensa.

Random Image

Nýjar fréttir