7.3 C
Selfoss
Home Fréttir Sunnudagsspjall með Brynhildi og Guðrúnu í Listasafninu í Hveragerði

Sunnudagsspjall með Brynhildi og Guðrúnu í Listasafninu í Hveragerði

0
Sunnudagsspjall með Brynhildi og Guðrúnu í Listasafninu í Hveragerði
Listakonurnar Guðrún Tryggvadóttir og Brynhildur Þorgeirsdóttir.

Á morgun sunnudaginn 28. janúar kl. 15:00 verða listamennirnir Brynhildur Þorgeirsdóttir og Guðrún Tryggvadóttir í Listasafni Árnesinga í Hveragerði og ræða við gesti um verk sín. Hvernig kallast verk þeirra beggja á, annars vegar skúlptúrar en hins vegar málverk. Örva þau skilningarvit okkar? Sjón er sögu ríkari og heimsókn skemmtilegt viðfangsefni, ekki síst þegar hægt er að ræða við listamennina um útfærsluatriði og hugmyndirnar sem liggja verkunum til grundvallar. Þá er líka áhugavert að heyra túlkun gesta og enn fleiri hugmyndir sem vakna.

Hvernig er hægt að mála málverk sem er 4×4 metrar að stærð og hvernig er að koma því fyrir til sýningar? Forvitnilegt verk að skoða, sem ber titilinn Fjórða víddin og er eftir Guðrúnu Tryggvadóttur. Aðalefniviður þess er olíulitir á striga en einnig notast Guðrún við ösku og skíragull. Utandyra má líka sjá stóran skúlptúr sem er tæpir 3 metrar á hæð og a.m.k. 2 metrar í þvermál sem ber það virðulega nafn, Árnesingur og höfundurinn er Brynhildur Þorgeirsdóttir. Ekki að ósekju að sýningin hafi fengið heitið Verulegar sem vísar bæði í veruleg verkin, verulega listamenn sem og verur því bæði Brynhildur og Guðrún fást við fígúratífa list. En verkin eru líka óræð og sækja í fantasíuna.

Flest verkanna á sýningunni eru unnin á síðustu þremur árum en einnig eru þar fáein verk frá upphafi ferils þeirra þar sem greina má tíðaranda níunda áratugarins þegar form og inntak verkanna birtu viðhorf í andstöðu við hefbundna myndlist þess tíma. Sýningarstjóri er Inga Jónsdóttir safnstjóri en Heiðar Kári Rannversson listfræðingur ritar grein í sýningarskrá sem gefin er út um sýninguna.

Aðgangur að safninu er ókeypis og allir velkomnir.