
Vaktmaður í Iðu íþróttahúsi
Fjölbrautaskóli Suðurlands
Fjölbrautaskóli Suðurlands óskar eftir að ráða vaktmann í Iðu íþróttahús frá og með 11. ágúst 2025. Um er að ræða 100% starf á vöktum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hefur umsjón með íþrótthúsinu, áhöldum, munum, útlánum á húsnæði og húsmunum, dyravörslu, ræstingu, ljósum og hita.
- Aðstoðar húsvörð FSu þegar við á.
- Baðvarsla, hreinsun búningsklefa og áhorfendapalla eftir leiki og aðra notkun.
- Tilfallandi störf við viðhald, s.s. lagfæringu á áhöldum og húsbúnaði, skipti á ljósaperum, minni háttar lagfæringar á vatnslagnakerfi, lagfæringar á dyraumbúnaði, skrám, gluggaumbúnaði og þau störf sem ekki krefjast sérstakrar fagþekkingar og/eða tækjabúnaðar.
- Annast ræstingu í Iðu á tímabilinu frá 15. maí til 15. ágúst.
- Hefur eftirlit með loftræsti- og hitakerfum.
- Hefur umsjón með öryggismálum og fylgist með myndavélakerfum í skólahúsnæðinu.
- Hefur umsjón með hreinsun, slætti og viðhaldi lóðar og bílastæða.
- Auk ýmissa annarra verkefna sem til falla í samvinnu við húsvörð og stjórnendur.
Leitað er að skipulögðum og reglusömum einstaklingi með áhuga á að vinna með fólki. Menntun í iðngrein eða sambærileg menntun sem nýtist í starfi æskileg. Krafa um framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og sveigjanleiki í samvinnu. Æskilegt er að umsækjandi hafi reynslu við vinnu í íþróttahúsi/sundlaug. Umsækjandi þarf að vera sjálfstæður í vinnubrögðum, hafa frumkvæði í starfi og jákvætt hugarfar.
Laun eru skv. kjarasamningi Fjármálaráðuneytis og FOSS og stofnanasamningi FSu. Umsóknarfrestur er til 19. maí 2025. Sótt er um á Starfatorgi.
Umsókn skal fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og fyrri störf ásamt kynningarbréfi. Mikilvægt er að tilgreina meðmælendur. Umsækjandi þarf að senda inn sakavottorð. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út nema umsækjandi ákveði annað. Í samræmi við jafnréttisáætlun skólans er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir.
Nánari upplýsingar um starfið veitir húsvörður skólans, Karl Ágúst Hoffritz, karl@fsu.is eða Soffía Sveinsdóttir skólameistari, skolameistari@fsu.is og í síma 480 8100 á skrifstofutíma. Frekari upplýsingar um skólann má finna á heimasíðunni, www.fsu.is
Skólameistari
To apply for this job email your details to karl@fsu.is