11.7 C
Selfoss

Valdís Una er íþróttamaður ársins 2025 í Hrunamannahreppi 

Vinsælast

Valdís Una Guðmannsdóttir var útnefnd íþróttamaður ársins 2025 í Hrunamannahreppi við hátíðardagskrá sveitarfélagsins á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Elísabet Finnbjörnsdóttir, formaður lýðheilsu- og æskulýðsnefndar Hrunamannahrepps, afhenti viðurkenninguna.

Tvær tilnefningar bárust að þessu sinni en auk Valdísar Unu var Emma Rún Sigurðardóttir tilnefnd fyrir góðan árangur í hestaíþróttum.

Valdís Una var valin körfuknattleikskona Selfoss fyrir árið 2025 en uppeldisfélag hennar er Umf. Hrunamanna. Hún lék upp yngri flokka félagsins áður en hún gekk til liðs við meistaraflokk Hamars/Þórs, þar sem hún lék á árunum 2021 og 2022.

Valdís lék með sameiginlegum liðum félaganna á árunum 2023 til 2025 en var í fyrra ein þeirra sem komu að stofnun nýs meistaraflokksliðs kvenna hjá Selfossi. Hún leikur nú með liðinu í 1. deild kvenna og hefur verið einn af lykilleikmönnum þess.

Valdís Una hefur jafnframt verið hluti af yngri landsliðum Íslands undanfarin ár og keppti meðal annars á Evrópumóti U16 ára landsliða í Finnlandi árið 2021. Þá hefur hún látið að sér kveða sem þjálfari yngri iðkenda og þykir góð fyrirmynd, jafnt innan vallar sem utan.

Emma Rún Sigurðardóttir var tilnefnd fyrir góðan árangur í hestaíþróttum á keppnisárinu 2025. Í umsögn nefndarinnar kemur fram að Emma hafi sýnt mikinn metnað, vinnusemi og vilja til að ná árangri.

Samkvæmt niðurstöðum úr Sportfeng náði hún fjölmörgum góðum keppnisárangri á árinu og komst alls ellefu sinnum í A-úrslit. Emma þykir nálgast æfingar og keppni af ábyrgð og alúð og er sögð góð fyrirmynd fyrir aðra unga knapa, bæði innan og utan keppnisvallar.

Hrunamannahreppur óskar Valdísi Unu og Emmu Rún innilega til hamingju með árangurinn og velfarnaðar á komandi árum.

Nýjar fréttir