12.3 C
Selfoss

„Selfoss á skilið sína eigin blúshátíð“

Vinsælast

Í fyrsta sinn verður haldin Blúshátíð Suðurlands á Selfossi dagana 25. og 26. september, en að baki hátíðarinnar standa þeir Páll Sveinsson, skólastjóri á Selfossi og margreyndur tónlistarmaður, og Örlygur Smári sömuleiðis margreyndur tónlistarmaður og íbúi á Selfossi.

Hvernig kviknaði hugmyndin að Blúshátíð Suðurlands?

Páll: „Við höfum lengi talað um að blústónlist ætti að eiga sér sterkari sess á Suðurlandi. Selfoss hefur þróast gríðarlega á síðustu árum og okkur fannst einfaldlega að tíminn væri kominn. Hér er öflugur hópur tónlistarfólks, mikill áhugi á lifandi tónlist og frábær aðstaða til að halda svona hátíð.“

Örlygur: „Þegar maður horfir á hvað hefur byggst upp í miðbænum síðustu ár sér maður að allt er til staðar. Gestir geta komið heila helgi, notið tónleikanna, farið út að borða, fengið sér drykk og gist á svæðinu. Þetta er nákvæmlega sú upplifun sem við viljum bjóða upp á.“

Af hverju Selfoss?

Páll: „Við búum báðir hér og okkur finnst mikilvægt að skapa viðburði sem styrkja menningarlífið á Suðurlandi. Það þarf ekki alltaf að sækja allt til höfuðborgarinnar. Við eigum einn besta tónleikastað landsins og viljum nýta þann vettvang til fulls.“

Við hverju mega gestir búast?

Örlygur: „Það verður sannkölluð tónlistarveisla. Dagskráin er þéttskipuð frábærum tónlistarmönnum og blúsunnendur fá tækifæri til að njóta fjölbreyttrar tónlistar yfir heila helgi. Við leggjum mikla áherslu á góða stemningu þar sem fólk getur hist, notið tónlistar og átt skemmtilega helgi saman.“

Þeir segja markmiðið skýrt: að byggja upp árlegan tónlistarviðburð sem verði fastur liður í menningarlífi Suðurlands.

Páll: „Við vonum að íbúar Suðurlands taki hátíðinni opnum örmum, en jafnframt að fólk af höfuðborgarsvæðinu leggi leið sína á Selfoss. Það tekur ekki langan tíma að keyra hingað og hér bíður gestanna einstök helgi með frábærri tónlist, góðum veitingastöðum, verslunum og skemmtilegu mannlífi.“

Örlygur: „Við hlökkum gríðarlega til að taka á móti gestum. Þetta er fyrsta Blúshátíð Suðurlands og við vonum að hún verði upphafið að fallegri hefð sem eigi eftir að vaxa með hverju árinu.“

Blúshátíð Suðurlands verður haldin á Sviðinu á Selfossi dagana 25. – 26. september. Meðal þeirra sem koma fram eru Kristjana Stefánsdóttir og hljómsveit, Pálmi Gunnars og Blúskompaníið, Blúsband Óskars Loga, Beggi Smári & Bexband, Rót og Beebee and the Bluebirds. Miðasala fer fram á www.svidid.is

Nýjar fréttir