11.1 C
Selfoss

Þrír Selfyssingar á verðlaunapalli í kvartmílu

Vinsælast

Selfyssingar hafa um árabil verið áberandi og sigursælir í íslenskum akstursíþróttum. Fimm keppendur frá Selfossi tóku þátt í fyrstu umferð Íslandsmótsins í kvartmílu sem fram fór 28. júní og náðu þrír þeirra verðlaunasæti.

Haukur Baldvinsson varð í öðru sæti í K/C-flokki, þar sem kennitíminn er 9,90 sekúndur. Ingimar Baldvinsson hafnaði í öðru sæti í K/D-flokki, þar sem kennitíminn er 10,90 sekúndur, og Arnkell Ragnar Ragnarsson varð þriðji í K/F-flokki, þar sem kennitíminn er 12,90 sekúndur.

Kennitími er sá lágmarkstími sem keppandi má nota til að aka kvartmíluna, sem er 402,33 metrar. Aki keppandi hraðar en kennitíminn segir til um tapar hann viðureigninni og ætti jafnframt að færa sig upp í hraðari flokk. Hraðinn þegar komið er í mark er gjarnan yfir 200 kílómetrar á klukkustund og getur orðið talsvert meiri.

Næstu keppnir Íslandsmótsins í kvartmílu fara fram 8. ágúst og 5. september. Þar á milli verða einnig haldnar keppnir í áttungsmílu. Áhugafólk um mótorsport getur kynnt sér keppnisdagatal íslenskra akstursíþrótta á vef Akstursíþróttasambands Íslands. Þar má sjá hversu lífleg og fjölbreytt flóra íslenskra akstursíþrótta er um þessar mundir.

Nýjar fréttir