5 C
Selfoss

Sungið inn í helgina á Laugarvatni

Vinsælast

Sjaldan er um tóma stund að ræða í Menntaskólanum að Laugarvatni. Nemendafélagið Mímir stendur fyrir ýmsum viðburðum yfir skólaárið til að halda félagslífinu fjölbreyttu og skemmtilegu. Fimmtudaginn 3. september var haldið „Kleó“-kvöld en það er kareókíkeppni þar sem nemendur fá tækifæri til þess að stíga á stokk og taka lagið fyrir framan fullan sal skólafélaga.

Keppnin er fyrst og fremst hugsuð sem góð skemmtun og tilbreyting frá hversdagsleikanum. Atriðin voru mörg og ansi fjölbreytt. Það voru þeir Vésteinn Loftsson og Valgeir Örn Ágústsson sem sigruðu að þessu sinni en þeir tóku lagið Komdu nú með inn í álfanna heim úr barnamyndinni Benedikt Búálfur.

Mynd: Amelía Íris Unnarsdóttir, vef- og markaðsstjóri Stjórn Mímis

Viðburður sem þessi byggir upp sjálfstraust keppenda með því að koma fram og láta rödd og orku sína skína. Satt að segja leynast miklir hæfileikar innan þessa nemendahóps og alltaf gaman að sjá fólk fara út fyrir þægindarammann sinn og fá hvatningu frá skólafélögum. Það er einmitt þetta sem gerir félagslífið í ML svo gott.

Nú styttist í Blítt og Létt sem er undankeppni skólans fyrir Söngkeppni framhaldsskólanna en hún verður haldin 29. október næstkomandi. Það er aldrei að vita nema þau sem byggðu upp kjarkinn með því að taka þátt í Kleó taki það einu skrefi lengra og komi þar fram.

Metta Malín Bridde, ritnefndarformaður Stjórn Mímis

Nýjar fréttir