8.1 C
Selfoss

Raddir fyrrum unglingakórsfélaga hljóma á ný

Vinsælast

Fyrrum félagar úr Unglingakór Selfosskirkju koma saman á ný og halda tónleika í Selfosskirkju sunnudaginn 20. september kl. 17.00. Margrét Bóasdóttir stjórnar kórnum og Sólveig Anna Jónsdóttir leikur með.

Hugmyndin kviknaði þegar fyrrum og núverandi kórfélagar sungu saman í tilefni af 70 ára afmæli Selfosskirkju fyrr á árinu. Samveran vakti upp góðar minningar og fljótlega kom upp sú hugmynd að hittast aftur, rifja upp gömlu lögin og halda tónleika. Nokkrar úr hópnum tóku málið í sínar hendur og skipulögðu endurfundi og æfingabúðir í Skálholti. Nú um helgina mun því hljóma á ný tónlist sem þátttakendur sungu saman fyrir allt að þremur áratugum, þá kórsöngvarar á unglingsaldri.

Mótandi ár og metnaðarfull verkefni

„Barna- og Unglingakórinn var mjög stór partur af mínum æskuárum. Kirkjan og kórinn var staður þar sem mér leið alltaf vel, eignaðist vini sem deildu sama áhugamáli og ég. Metnaðurinn skein í gegn hjá kórstjórunum, ferðalög innan og utan landsteinanna, kóramót, kórakeppnir og skemmtilegustu helgarnar þegar farið var í æfingabúðir á Laugaland eða Skálholt“ rifjar Bryndís Erlingsdóttir fyrrum kórfélagi upp í aðdraganda endurfundanna. Ragnheiður Ágústa Árnadóttir tekur í sama streng og segir „gaman að vera hluti af þessum stórkostlega hópi.” Hún segist hlakka mikið til „að hitta aftur þessar flottu, sterku konur.“

Á þeim skamma tíma sem hópurinn hefur til að æfa er markið sett hátt. Efnisskráin mun samanstanda af verkum sem sungin voru á mismunandi tímabilum á fyrstu áratugum starfsins, og jafnvel munu fá að hljóma ný verk sem verða æfð sérstaklega fyrir þetta tilefni. Það verður spennandi að heyra hvernig þessum hópi, sem var svo heppinn að fá svo gott tónlistaruppeldi í veganesti, tekst til.

Rætur kórstarfsins liggja í barnakór sem Glúmur Gylfason stofnaði við Selfosskirkju árið 1988. Hann hafði gott lag á ungum söngvurum og beitti látbragði og einstökum aðferðum við að kenna þeim undirstöðuatriði söngsins. Stefán Þorleifsson kom  til liðs við hann árið 1992 og átti sinn þátt í að glæða starfið lífi og sönggleði.

Frá Vivaldi til Washington

Mikil áhersla var lögð á gott foreldrasamstarf í kórstarfinu og jafnt og þétt var byggt upp öflugt starf og verkefni kórsins urðu sífellt viðameiri og metnaðarfyllri. Kórinn vakti athygli fyrir fallega framkomu og kröftugan og vel æfðan söng. Á sjötta starfsári kórsins var ráðist í það verkefni að æfa nokkuð viðamikið kirkjulegt verk, Gloríu eftir Vivaldi sem var svo flutt um vorið með pompi og prakt ásamt hljómsveit og kór Kórskóla Langholtskirkju. Ári síðar fór svo kórinn í sína fyrstu utanlandsferð til Skotlands.

Árið 1997 tók Margrét Bóasdóttir við stjórn Unglingakórsins og hélt áfram því metnaðarfulla starfi sem hafið var. Undir hennar stjórn kom kórinn meðal annars fram á jólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands, flutti Ceremony of Carols eftir Benjamin Britten og fór í tónleikaferð til Bandaríkjanna. Þar söng kórinn meðal annars við opnun sýningar á íslenskum handritum í Library of Congress.

Árið eftir tók kórinn þátt í alþjóðlegri tónlistarhátíð og kórakeppni í Cantonigros á Spáni og varð þar í fimmta sæti í flokki kvennakóra. Kórinn söng einnig við messu í dómkirkjunni í Barcelona. Sólveig Anna Jónsdóttir var meðleikari í þeirri ferð og verður nú aftur með hópnum á tónleikunum í Selfosskirkju.

Dýrmætt tónlistaruppeldi

Sú alúð sem stjórnendur Barna- og unglingakóranna hafa lagt í starfið verður seint fullþökkuð. Enn er ótalið framlag Jörgs Erich Sondermanns sem stýrði kórnum um skeið eða þar til núverandi kórstjóri, Edit Molnár tók við. Í hennar höndum blómstar þetta mikilvæga starf sem aldrei fyrr.

Sveitarfélaginu Árborg og Héraðssjóði Suðurprófastsdæmis eru færðar þakkir fyrir stuðning við verkefnið.

Tónleikarnir hefjast kl. 17.00 sunnudaginn 20. september í Selfosskirkju. Öll eru hjartanlega velkomin.

Nýjar fréttir