ARRA stúdíó, sem er rekið af myndlistarkonunum og hönnuðunum Ragnheiði Ástu Valgeirsdóttur og Amy Alice Riches, er að setja af stað 8 vikna myndlistarnámskeið á Selfossi. Í haust 2026 verða í boði tvö teikninámskeið fyrir fullorðna og ungmenni í „Teikningu I“.
ARRA stúdíó hefur verið að gerjast í nokkur ár með vaxandi samvinnu milli Ragnheiðar og Amy en var stofnað formlega í fyrra. Stúdíóið þjónustar fyrst og fremst fyrirtæki og einstaklinga sem eru að leita að lausnum varðandi teikningu og hönnun, t.d. fyrir auglýsingar, barnabækur eða tölvuleiki.
„Næsta skref hjá okkur hefur verið að bæta við myndlistarnámskeiðum þar sem okkur finnst einstaklega gaman að kenna, ræða list og teikna saman, enda er myndlist eitthvað sem allir geta stundað á hvaða aldri sem er,“ segja Ragnheiður og Amy í samtali við Dagskrána.
Þessi námskeið henta þeim sem hafa alltaf viljað læra að teikna en aldrei gefið sér tíma til þess eða eru að taka sín fyrstu skref í teikningu. Þau sem eru lengra komin eða vilja rifja upp grunnatriði klassískra teikninga eru einnig velkomin, þar sem við aðlögum efnið að getu hvers og eins.
Vilja byggja upp myndlistarsamfélag á Suðurlandi
Ragnheiður og Amy fluttu nýverið á Selfoss. Þær segja að þó að hin almenna vinna hjá stúdíóinu sé ekki föst við neina ákveðna staðsetningu þá fannst þeim mikilvægt að hafa myndlistarnámskeiðin á Selfossi frekar en í Reykjavík.
„Selfoss og Suðurlandið eru ört stækkandi samfélag og langaði okkur að tengjast samfélaginu hér sterkari böndum og byggja upp enn sterkara myndlistarsamfélag.”
„Það er sterk myndlistarflóra á Selfossi og Suðurlandi, mikið af frjóu listafólki, flott starf fyrir fullorðna hjá Myndlistarfélagi Árnessýslu, sem við erum í líka, listabrautin hjá FSU, Listasafn Árnesinga og margt fleira. Í gegnum þessa aðila og fleiri hafa oft verið stutt námskeið, fyrirlestrar og skemmtilegir viðburðir, en okkur hefur fundist vanta lengri námskeið sem spanna fleiri vikur, svolítið eins og myndlistarskólarnir sinna á höfuðborgarsvæðinu, en við viljum geta boðið upp á eitthvað á svæðinu frekar en að fólk þurfi alltaf að sækja þjónustu inn til Reykjavíkur. Við erum einnig báðar mjög klassískt menntaðar í myndlist og leggjum metnað í að kenna góðan teiknigrunn sem er hægt að nýta áfram í allri teikningu, málun og jafnvel abstrakt list,“ segja þær.
Vonast eftir aukinni starfsemi
Markmiðið er að þjálfa góðan grunn í teikningu, skilning á efninu og öryggi til þess að teikna á eigin vegum. Einnig er mikilvægt að finna gleðina og núvitundina sem teikning getur gefið okkur í listinni og daglegu lífi.
Þær segja viðtökurnar hafa verið góðar en að hingað til hafi verið meiri áhugi á fullorðinsnámskeiðinu okkar en meðal ungmenna. Þær hafa einnig fengið fyrirspurnir um yngri aldurshópa sem þær munu taka til skoðunar fyrir vorið.
Er þetta upphafið að meiri starfsemi hjá ARRA stúdíó? Eru fleiri námskeið eða viðburðir fyrirhuguð síðar?
„Það er vonin. Okkar grunnstarfsemi mun alltaf vera í gangi en ef námskeiðshaldið gengur vel í haust þá viljum við bæta í þar. Við erum með ýmsar hugmyndir um fjölbreytt námskeið sem gætu verið jafnframt löng og stutt námskeið, t.d. námskeið í olíumálun, kolateikningu, portrett, magna og myndasögum, plein-air útimálun og svo mætti lengi telja, fyrir enn breiðari aldurshóp. Einnig væri gaman að geta þjónustað Suðurlandið enn betur og boðið upp á námskeið lengra frá Selfossi, eins og t.d. Hvolsvelli, Flúðum eða Vík,“ segja þær að lokum.
Tímasetningar á námskeiðum ARRA stúdíó næsta haust:
Teikning I fyrir fullorðna: 9. sep – 28. okt / Miðvikudaga kl 19:00-22:00 / 8 vikur
Teikning I 13–16 ára: 10. sep – 29. okt / Fimmtudaga kl 16:30–18:30 / 8 vikur


