11.1 C
Selfoss

First Water gerir 700 milljóna króna samning

Vinsælast

First Water hefur gert samning við norska fyrirtækið Overhalla Betongbygg um framleiðslu og afhendingu á forsteyptum einingum fyrir átta ný eldisker við landeldisstöð félagsins á Laxabraut í Þorlákshöfn. Samningurinn hljóðar upp á 55 milljónir norskra króna, jafnvirði um 700 milljóna íslenskra króna.

Eldiskerin verða 28 metrar í þvermál og 9,5 metrar á hæð. Hvert þeirra rúmar um 5.600 rúmmetra af vatni. Alls verða um 4.300 tonn af forsteyptum einingum framleidd í verksmiðju Overhalla Betongbygg í Namdalen í Noregi og flutt til Íslands. Gert er ráð fyrir að afhending hefjist snemma árs 2027.

Nýju kerin eru síðasti hluti fyrsta áfanga uppbyggingar First Water í Þorlákshöfn. Þegar framkvæmdum við áfangann lýkur mun árleg framleiðslugeta félagsins tvöfaldast, úr 5.000 tonnum í 10.000 tonn af laxi.

Uppbygging eldisstöðvarinnar er fyrirhuguð í sex áföngum. Samkvæmt áætlunum First Water gæti árleg framleiðslugeta stöðvarinnar numið um 60.000 tonnum þegar hún verður fullbyggð.

„Þetta er samningur sem við erum stolt af. Verkefni af þessu tagi eru mjög mikilvæg fyrir áframhaldandi þróun fyrirtækisins,“ segir Arnt Ove Amdal, framkvæmdastjóri Overhalla Betongbygg.

First Water stundar landeldi á laxi í Þorlákshöfn og notar blandað gegnumstreymiskerfi þar sem hreinn jarðsjór, sem síast hefur í gegnum hraunlög, er nýttur við eldið. Félagið vinnur laxinn jafnframt í eigin vinnslustöð í Þorlákshöfn og er framleiðslan seld á markaði í Evrópu og Bandaríkjunum.

Nýjar fréttir