13.6 C
Selfoss

Kjúklingaborgari með meðlæti

Vinsælast

Matgæðingur vikunnar er Björgvin Bjarnason.

Takk Bjarki fyrir áskorunina að vera næsti matgæðingur vikunnar.

Ég ætla að deila með ykkur uppskrift að kjúklingaborgara og meðlæti.

Kjúklingaborgari með meðlæti

Mexíkó Grillbringur frá Holta
Hamborgarbrauð
Ostur
Ferskt salat

Grillið Holta grillbringurnar í 4 mín á hvorri hlið og setjið ost yfir síðustu mínúturnar.

Berið fram í hamborgarbrauðum með borgarasósu og fersku salati á milli ásamt ofnbökuðum kartöflum.

Borgarasósa

3 msk. grísk jógúrt
5 msk. majónes
1 tsk. síróp
1 skalottlaukur, saxaður smátt
1 vorlaukur, saxaður smátt
1- 2 msk. af Jalapeno í krukku, saxað smátt
1 msk. af súrum gúrkum, saxaðar fínt
1 msk. fersk steinselja
Salt og svartur pipar

Aðferð

Skerið smátt niður vorlauk, skallotlauk og steinselju, setjið í skál og blandið majónesi og grísku jógúrti saman við ásamt sírópi. Kryddið til með salti og pipar. Bætið jalapeno saman við í lokin og það er ágætt að bæta honum smám saman við, setjið lítið af honum til að byrja með og smakkið til að smekk, bætið við ef þið viljið sterkari sósu.

Ofnbakaðar kartöflur með parmesan

15 meðalstórar kartöflur
1,5 dl af olíu
2 pressuð hvítlauksrif
4–6 msk. af parmesanosti

Hitið ofninn í 200 °C.

Skerið kartöflur í bita og setjið öll hráefnin í skál og blandið saman.

Setjið kartöflur í eldfast mót og inn í ofn í 30 til 35 mín. Gott er að snúa þeim nokkrum sinnum á meðan þær eru í ofninum.


Ég ætla að skora á elsta soninn, Pál Jóhannsson, matgæðing og veiðimann, að koma með uppskriftir að einhverjum kræsingum í næsta blað.

Nýjar fréttir